Á árinu 2022 varð rekstrarumhverfið aftur eins og var á árunum fyrir covid. Afkoma var umfram áætlun og nam hagnaður ársins 877 m.kr.
Áfengi var selt fyrir 36,5 ma.kr. með virðisaukaskatti. Í lítrum dróst sala áfengis saman um 8,4% á milli ára. Alls seldust 24.171 þús. lítrar, þar af var bjórsala 18.610 þús. lítrar.
Sala tóbaks nam 10,1 ma.kr. með virðisaukaskatti. ÁTVR innheimtir tóbaksgjald. Gjaldið nam 4.695 m.kr. á árinu 2022 og lækkaði um 793 m.kr. frá árinu á undan. Sala vindlinga í magni dróst saman um 14,7%. Sala vindlinga nam 747,5 þús. kartonum og af vindlum seldust 3.567 þúsund stykki. Selt magn neftóbaks var 12.584 kg og var samdráttur 24% frá fyrra ári.
ÁTVR opnaði fyrsta afhendingarstað fyrir áfengi í Hrísey á árinu til reynslu. Viðskiptavinir geta verslað í vefbúð ÁTVR og fengið vöruna afhenta þar án aukakostnaðar.
Viðskiptavinafjöldi Vínbúðanna var 5,2 milljónir sem eru 5,3% færri viðskiptavinir en árið á undan. Eignir námu 8.833 m.kr, skuldir voru 1.886 m.kr. og eigið fé nam 6.947 m.kr. í árslok 2022. Greiddur var 500 m.kr. arður í ríkissjóð.
Á árinu fengu 650 starfsmenn greidd laun hjá ÁTVR. Margir eru í hlutastarfi. Ársverk voru 329, sem er fækkun um 13 ársverk á milli ára.
Helstu framkvæmdir ársins voru að Vínbúðin flutti í nýtt húsnæði á Egilsstöðum og unnið var að viðhaldi á húsnæði ÁTVR á Akureyri þar sem þak var endurnýjað og lagfært. Hafnar voru framkvæmdir við Vínbúðina á Seyðisfirði þar sem endurnýja þarf lagnir. Hillum undir vörur var fjölgað í Vínbúðunum í Mosfellsbæ, Stykkishólmi, Garðabæ og Selfossi. Unnið var að ýmsu viðhaldi í Vínbúðunum á Kirkjubæjarklaustri, Grundarfirði, Búðardal og Flúðum. Unnið var að endurbótum á húsnæði ÁTVR að Stuðlahálsi í Reykjavík og undirbúningi stækkunar á dreifingarmiðstöð ÁTVR. Einnig var unnið að uppfærslu upplýsingakerfa ÁTVR.
Lög um gjald af áfengi og tóbaki var breytt í upphafi árs þannig að bæði áfengisgjald og tóbaksgjald var hækkað um 2,5%.
Reykjavík, mars 2023
Undirritað rafrænt
Ívar J. Arndal, forstjóri.
Ríkisendurskoðandi starfar á grundvelli laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og siðareglur alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana. Hlutverk ríkisendurskoðanda er að tryggja að fram fari endurskoðun og eftirlit í samræmi við 4. gr. laganna.
Ríkisendurskoðandi ber húsbóndaábyrgð á störfum þeirra endurskoðenda sem starfa hjá Ríkisendurskoðun og framkvæma endurskoðun á grundvelli laga um endurskoðendur og endurskoðun, lögum um ársreikninga og þeim almennu reglum sem þeir hlíta samkvæmt alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum.
Endurskoðunin var framkvæmd í samræmi við lög nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga.
Ríkisendurskoðun, mars 2023
Undirritað rafrænt
Guðmundur Björgvin Helgason
Ríkisendurskoðandi
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning ÁTVR fyrir árið 2022. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn sýni glögga mynd af fjárhagsstöðu ÁTVR 31. desember 2022, afkomu fyrirtækisins og breytingu á handbæru fé á árinu 2022, í samræmi við lög um opinber fjármál og lög um ársreikninga.
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila. Ábyrgð samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér á eftir. Við erum óháð ÁTVR og höfum starfað í samræmi við lög nr. 46/2016 um Ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og siðareglur Ríkisendurskoðunar. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægjanlegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Forstjóri er ábyrgur fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um bókhald og lög um opinber fjármál með vísan til laga um ársreikninga. Forstjóri er einnig ábyrgur fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar við gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit á ársreikningnum.
Nægjanleg vissa er mikið öryggi, en ekki trygging þess að endurskoðun sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Endurskoðun var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila en hún byggir á faglegri dómgreind og gagnrýnni hugsun. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
Okkur ber skylda til að upplýsa forstjóra ÁTVR um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar. Jafnframt var upplýst um mikilvæg atriði sem fram komu við endurskoðunina, þar á meðal eftir atvikum verulega annmarka á innra eftirliti.
Ríkisendurskoðun, mars 2023
Undirritað rafrænt
Óskar Sverrisson
Endurskoðandi
2021 | |||
Rekstrartekjur | |||
Sala áfengis | |||
Sala tóbaks | |||
Sala umbúða o.fl. | |||
Rekstrargjöld | |||
Húsnæðiskostnaður | |||
Sölu- og dreifingarkostnaður | |||
Stjórnunar- og skrifstofukostnaður | |||
Annar rekstrarkostnaður | |||