Mannauður
Frábært starfsfólk
Mannauður
Frábært starfsfólk

Frábært starfsfólk er grunnur að góðum árangri. Við viljum eftirsóknarverðan vinnustað þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð. Áhersla er lögð á að starfsfólk geti vaxið í starfi og aflað sér þekkingar sem stuðlar að starfsánægju og framúrskarandi þjónustu.

Starfsánægja
Mannauður
Ánægt starfsfólk

Áhersla er lögð á að vinnustaðurinn sé eftirsóknarverður, þar ríki góður starfsandi og allt starfsfólk leggi sig fram um að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Gildin Lipurð, Þekking og Ábyrgð endurspegla þær áherslur og skapa grunn að góðum vinnustað. Á árinu voru gerðar fjórar styttri vinnustaðagreiningar til að mæla starfsánægju. Þegar horft er á heildarniðurstöður þessara fjögurra kannana þá er niðurstaðan á bilinu 4,20 – 4,47 af 5 mögulegum, sem er frábær árangur.

4,32
Á heildina litið er ég ánægð/ur í starfi mínu - einkunn 4,32 af 5 mögulegum
mannaudur_anaegt starfsfolk_1620x1200

Stofnun ársins er samræmd könnun stofnana í eigu ríkisins. Könnunin mælir starfsánægju auk fjölmargra annarra þátta sem snúa að stjórnun og starfsumhverfi. Könnunin var að þessu sinni framkvæmd í nóvember og desember 2022. Könnunin er unnin af Gallup og er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra stofnana. Í tilviki ÁTVR er öllu starfsfólki boðið að taka þátt óháð stéttarfélagi. ÁTVR var í öðru sæti stórra stofnana, með 90 starfsmenn eða fleiri, með heildareinkunnina 4,36. ÁTVR hækkaði um þrjú sæti á milli mælinga, var árið 2021 með einkunnina 4,22 í fimmta sæti. Til samanburðar er heildareinkunn stórra stofnana 3,93.

Við upphaf starfs er öllu starfsfólki kynntar siðareglur. Þeim er ætlað að skerpa á ábyrgð starfsfólks og undirstrika mikilvægi þess að allir hagsmunaaðilar njóti sanngirni og jafnræðis. Til að gera starfsfólki kleift að sinna starfi sínu sem best er mikil áhersla lögð á að veita sem bestar upplýsingar. Samskiptavefurinn Workplace er nýttur til að miðla upplýsingum um mál sem snúa að rekstri og félagslegum þáttum. Aukin áhersla er á þátttöku starfsfólks í fræðslu, viðburðum og fundum með betra aðgengi starfsstöðva að fjarfundarbúnaði.

Góð heilsa
Mannauður
Góð heilsa

ÁTVR hefur velferð og heilsu starfsfólks að leiðarljósi. Starfsfólk er hvatt til að huga að heilsu og vellíðan með margvíslegum hætti. Boðið er upp á styrki og fræðslu og hvatt er til þátttöku í vinnustaðakeppnum. Starfsfólki er boðið að gera samgöngusamninga eftir árstíðum, sumar og vetur. Fleiri óska eftir samningi yfir sumartímann. Markmið samninganna er í meginatriðum tvíþætt: að auka hreyfingu og minnka umhverfisáhrif. Starfsfólk sem gerir samgöngusamning skuldbindur sig til að ferðast til og frá vinnu með vistvænum hætti meirihluta vikunnar. Á undanförnum árum hefur notkun á vistvænum bílum aukist og er hleðslustöðvum á Stuðlahálsi ætlað að styðja við orkuskipti í samgöngum.  

77%
starfsfólks ánægt með samgöngusamning

Árlega er gerð könnun á meðal starfsfólks þar sem spurt er út í ýmsa þætti tengda samgöngusamningnum og ferðamáta. Af þeim sem tóku afstöðu voru 77% ánægðir með samninginn og 85% telja hann hafa jákvæð áhrif á heilsu. Þegar spurt er um ferðamáta til og frá vinnu þá koma tæplega 40% á jarðefnabíl, 25% koma fótgangandi og þar á eftir eru reiðhjól en 11% koma hjólandi. Þeir sem hjóla eru ánægðastir með ferðamáta sinn en minnst ánægja er með strætó sem ferðamáta.

Farartæki sumar - fyrsti kostur
  • 2019
  • 2020
  • 2021
  • 2022

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um Sjálfbæra þróun, sjálfbærar borgir og samfélög númer 11, Heilsa og vellíðan númer 3, og Aðgerðir í loftslagsmálum númer 13 fléttast inn í samgöngumálin. Það leiðir af sér minna svifryk, minni útblástur, minni gatnaskemmdir, styttri umferðartíma og betri andlega og líkamlega heilsu.

Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna eru skemmtilegar keppnir sem efla liðsheild og hvetja fólk til hreyfingar. Almennt er mjög góð þátttaka í Lífshlaupinu og hefur fyrirtækið verið í einu af efstu sætunum í sínum flokki. Færri taka þátt í Hjólað í vinnuna en reynt er að hvetja fólk til að vera með og byrja hjólasumarið með þátttöku.

Starfsfólki er boðið upp á heilsufarsskoðun þar sem mældur er blóðþrýstingur, kólesteról og blóðsykur, auk þess er boðið upp á viðtöl þar sem lögð er áhersla á umræðu um álag og streitu.

Til að stuðla að sjálfbærni og geta boðið upp á hollan og næringarríkan mat var haldið áfram með matjurtagarð á lóðinni á Stuðlahálsi. Í garðinum voru ræktaðar ýmsar tegundir: rabarbari, rifsber, kryddjurtir, kartöflur, grænkál og jarðarber. Mikil ánægja var með uppskeruna og er markmiðið að halda áfram með ræktunina.

Greining og tölur
Mannauður
Mannauður - greining og tölur

Í árslok voru 480 starfsmenn á launaskrá. Konur eru fleiri í starfsmannahópnum eða 264 á móti 215 körlum, einn er með hlutlaust kyn. Ráðningarformin eru tvö. Fastráðning sem getur bæði verið fullt starf og hlutastarf, og tímavinna. Tímavinnustarfsfólk vinnur almennt á álagstímum seinni hluta vikunnar, í sumarafleysingum og um jól.

Á árinu fengu 650 starfsmenn greidd laun. Ársverk voru 329 og fækkaði um 13 á milli ára. Meðalaldur starfsfólks er rúmlega 38 ár og starfsaldur að meðaltali 5,8 ár. Ef litið er til ráðningarforms þá er meðalaldur fastráðinna starfsmanna tæplega 44 ár og meðal starfsaldur rúmlega 11 ár. Starfsfólk sem vinnur í tímavinnu er með tæplega 34 ára meðalaldur og starfsaldurinn er í kringum 2,8 ár.

Starfsmannavelta fyrirtækisins í heild var 33%. Meiri starfsmannavelta er hjá tímavinnufólki en í hópi fastráðinna.

Alls tóku 19 starfsmenn fæðingarorlof árið 2022, níu karlar og tíu konur. Átta karlmenn hafa snúið aftur til starfa að loknu fæðingarorlofi, einn er í orlofi og einn hefur látið af störfum. Fjórar konur eru enn í fæðingarorlofi, tvær hafa látið af störfum og fjórar eru komnar aftur til starfa.

650
fengu greidd laun árið 2022
329
ársverk voru unnin árið 2022
Hlutfall starfsmannaveltu eftir aldri
  • Dreifingar- miðstöð
  • Skrifstofa
  • Starfsfólk Vínbúða
  • Stjórnendur Vínbúða
Hlutfall starfsmannaveltu eftir kyni
Slys og fjarvistir
Mannauður
Slys og fjarvistir vegna veikinda

Markmiðið er að halda vinnustaðnum öruggum og slysalausum. Það náðist ekki í ár. Alls voru skráð sex slys, þrír karlar og tvær konur slösuðust á vinnustað og ein kona slasaðist á leið til eða frá vinnu.

Í viðverukerfi er haldið utan um fjarveru starfsfólks vegna veikinda og veikinda barna. Fjarveru vegna veikinda er skipt í langtíma- og skammtímafjarveru. Skammtímafjarvera vegna veikinda er skilgreind allt að tvær vikur og langtímafjarvera er fjarvera lengri en tvær vikur samfellt. Skammtímafjarvera vegna veikinda og veikinda barna var alls 3,9% á árinu og hækkaði úr 3,1% á milli ára.

Starfsþróun
Mannauður
Fræðsla og starfsþróun

Áhersla er lögð á að starfsfólk geti vaxið í starfi og aflað sér þekkingar sem stuðlar að starfsánægju og framúrskarandi þjónustu. Vöruþekking er þungamiðja fræðslunnar. Á árinu er fræðslan smám saman að nálgast fyrra horf eftir heimsfaraldur. Samtals voru fræðslustundir 6.502 umreiknað í 20 stundir á stöðugildi og jókst um 7 stundir á stöðugildi á milli ára.

Mannauður-fræðsla og starfsþ_1620x1200
Fræðsla
Fræðsluflokkar Starfsfólk Konur Karlar Tímar alls Meðalfjöldi á stöðugildi
Vöruþekking 2.969 62% 38% 5.142 15,6
Önnur fræðsla, góð heilsa og lífsleikni 898 67% 33% 898 2,73
Stjórnendaþjálfun 66 67% 33% 99 0,30
Nýliðafræðsla 61 64% 36% 183 0,56
Skyndihjálparnámskeið 45 80% 20% 180 0,55
Samtals námskeiðsstundir 6.502 20

Í þjónustukönnunum eru viðskiptavinir spurðir um afstöðu til þekkingar starfsfólks. 77% telja starfsfólk Vínbúðanna búa yfir mjög eða frekar mikilli þekkingu. Eingöngu 3% telja þekkinguna mjög eða frekar litla.

Starfsmannasamtöl eru hluti af endurgjöf og starfsþróun. Öllu starfsfólki er að lágmarki boðið upp á tvö samtöl á ári. Samtölunum er ætlað að gefa starfsmanni og stjórnanda færi á að ræða líðan í starfi, verkefni og samskipti. Markmið samtalanna er jafnframt að leita leiða til úrbóta þar sem þörf er á.

Kjarasamningar
Mannauður
Kjarasamningar

Öll starfsemi ÁTVR er á Íslandi og því er ekki talin hætta á að brotið sé á réttindum starfsmanna varðandi samningsrétt eða þátttöku í stéttarfélögum.

ÁTVR virðir mannréttindi og fylgir lögum og reglum sem gilda um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkisins, gerir kjarasamning við viðkomandi stéttarfélög. Starfsfólk fær greidd laun í samræmi við kjarasamninga, fyrir utan forstjóra en laun hans eru ákvörðuð af fjármála- og efnahagsráðherra. Gerðir hafa verið stofnanasamningar um nánari útfærslur kjarasamnings við annars vegar Sameyki og hins vegar einstök félög háskólamenntaðra starfsmanna. Allt starfsfólk er í stéttarfélagi.

Starfsfólk undir 20 ára aldri er ekki ráðið til starfa. Ástæðan er sú að viðskiptavinir þurfa að hafa náð 20 ára aldri til að mega versla í Vínbúðum.

Starfsfólk er ýmist ráðið tímabundið eða fastráðið. Uppsagnafrestur starfsfólks er samkvæmt viðeigandi kjarasamningum. Hann er ólíkur eftir ráðningarformi, einn mánuður hjá tímavinnustarfsfólki en að lágmarki þrír mánuðir fyrir fastráðna.

Starfsfólk sem ráðið var til starfa fyrir gildistöku starfsmannalaganna sem sett voru í júní 1996, getur átt rétt til biðlauna ef starf þeirra verður lagt niður.

Jafnlaunavottun
Mannauður
Jafnlaunavottun

ÁTVR hefur sett sér jafnlaunastefnu og birt jafnréttisáætlun. Markmið jafnlaunastefnu er að allt starfsfólk hljóti jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni, þjóðerni eða öðrum órökstuddum þáttum. Jafnréttisáætlun er ætlað að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu þeirra og virðingu. ÁTVR leggur áherslu á að allir fái notið sín án tillits til kynferðis, kynþáttar, trúarbragða, aldurs eða búsetu. Jafnréttisáætlun ÁTVR byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynja.

Eftir innleiðingu á jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012 haustið 2018, hlaut ÁTVR jafnlaunavottun til þriggja ára frá BSI á Íslandi og í framhaldi heimild til að nota jafnlaunamerki Jafnréttisstofu. Jafnlaunavottunin var endurnýjuð haustið 2021. Með vottun felst jafnframt skuldbinding til að vinna að stöðugum umbótum, hafa eftirlit með viðmiðum og bregðast við frávikum sem upp kunna að koma.